Atvik í raforkukerfi Vestmannaeyja vekur spurningar
Í kjölfar rafmagnsleysis í Vestmannaeyjum 6. apríl hefur skapast umræða um áreiðanleika raforkudreifingar í Eyjum. Vinnslustöðin hefur kallað eftir skýringum á atvikinu og telur mikilvægt að farið sé yfir hvort afhendingaröryggi standist þær kröfur sem gerðar eru.
Eyjafréttir fjalla ítarlega um málið, þar sem raktar eru bæði skýringar orkufyrirtækja og sjónarmið Vinnslustöðvarinnar. Þar segir m.a.
Rafmagnslaust varð í Vestmannaeyjum 6. apríl þegar yfirspennuvörn í dreifikerfi sló út í kjölfar spennuhöggs sem rekja má til eldingar í flutningskerfi. Samkvæmt upplýsingum frá Landsneti hélt flutningskerfið og afhendingaröryggi var til staðar þegar truflunin varð.
Rafmagnsleysi í Eyjum varð hins vegar þegar rofi í dreifikerfi leysti út. HS Veitur segja að varnir hafi brugðist rétt við til að verja búnað, en nú er til skoðunar hvort þær hafi verið of viðkvæmar.
„Kerfi Landsnets hélt en ekki dreifikerfið“
Í umfjöllun Eyjafrétta bendir Willum Andersen, tæknilegur rekstrarstjóri Vinnslustöðvarinnar, á að atvikið varpi ljósi á veikleika í dreifikerfinu. Hann segir að þrátt fyrir að flutningskerfi Landsnets hafi haldið hafi dreifikerfið ekki gert það.
Willum segir að svokallað N-1 afhendingaröryggi, sem á að tryggja raforku þótt einn hluti kerfisins falli út, virðist ekki endurspeglast í dreifikerfinu innanbæjar í Vestmannaeyjum. Þar sé í raun um einfalt kerfi að ræða þar sem tveir sæstrengir tengjast einni spennistöð með einum spenni og einföldu rofavirki.
Jafnframt bendir hann á að gjaldtaka fyrir raforkudreifingu hafi hækkað verulega á undanförnum árum. Sem dæmi hafi kostnaður við flutning raforku fyrir rafskautakatla hækkað úr 4,13 kr/kWh í 17,97 kr/kWh. Hækkunin skiptist milli Landsnets og HS Veitna, en að mati Willums hefur dreifikerfið ekki verið byggt upp í samræmi við þá auknu gjaldtöku.
Hann segir fyrirtæki í Eyjum því í sumum tilvikum standa frammi fyrir þeirri stöðu að hagkvæmara sé að nota olíu en raforku til framleiðslu, þrátt fyrir hátt olíuverð.
Atvikið hefur vakið spurningar um hvort afhendingaröryggi raforku í Vestmannaeyjum standist þær kröfur sem gerðar eru, og hvort gjaldskrár endurspegli raunverulegt öryggi. Eyjafréttir fjalla ítarlega um málið, þar sem raktar eru bæði skýringar orkufyrirtækja og sjónarmið Vinnslustöðvarinnar.