Fara á efnissvæði
World Map Background Image
1 127171972 409760640177952 5140392455858273459 N Til baka

9.55°C

ESE

11.32 m/s

Jólasíld Vinnslustöðvarinnar í ár fékk afbragðsdóma algjörlega hlutlauss kviðdóms starfsmanna á skrifstofu VSV á blindsmökkunarsamkomu í dag. Jólasíld Ísfélagsins fékk góða dóma líka en var sett skör lægra í aðaleinkunn þegar öll stig í bragð- og skynmati voru lögð saman.

Síldarkviðdómur VSV fjallaði bæði um innihald og umbúðir. Í umbúðahlutanum hafði Ísfélagið betur og þar var munurinn býsna afgerandi. Ísfélagið flaggar fagurprentuðu jólaloki á síldardósunum sínum og í niðurstöðu kviðdóms er kvatt til þess að umbúðahönnun VSV verði betri gaumur gefinn eftirleiðis til að saman fari síld og dós eða hljóð og mynd ef menn skilja þá samlíkingu betur.

Verkunaraðferðir jólasíldarframleiðendanna eru giska ólíkar. Laukur og piparkorn einkenna VSV-síldina en rauð paprika er áberandi meðafli í Ísfélagsdósum.

Vinnslustöðin afhendir starfsmönnum sínum, hluthöfum og vildarvinum jólasíldina 8. desember. Þegar Ísfélagið hefur afhent sína síld líka geta Eyjamenn tekið upp árvissan þráð í samanburði og farið að metast um bragð og gæði.

Sigurjón Óskarsson útgerðarmaður kannast vel við nákvæmlega þessa hlið málsins:

„Blessaður vertu, menn í brúnni hjá okkur og gestkomandi karlar í kaffispjall hafa löngum getað rökrætt um jólasíldina og sitt sýnist hverjum. Við höfum fengið líka ljómandi góða síld hjá Loðnuvinnslunni á Fáskrúðsfirði. Sjálfur háma ég þetta allt saman í mig!“

Sigurjón er nýkominn úr fríi á Spáni og flaug heim um Kastrupflugvöll í Kaupmannahöfn.

„Ég fékk ekki síld á Spáni en keypti í staðinn sardínur í tómat og olíu og fleira fínasta sjávarfang. Nú bíð ég spenntur eftir því að fá jólasíldina frá Binna. Er nokkuð búið að afhenda hana? Kannski ég rölti niður í Vinnslustöð og væli líka út dós handa bróður mínum vestur á Mýrum.

Annars var ljúft á Spáni, 20 til 25 stiga hiti á daginn en síðasta morguninn bara 14 stig og í raka loftinu varð manni eiginlega kalt. Þá dugar ekki annað en að taka fram síðerma skyrturnar.

Lífið gengur annars sinn vanagang hjá Spánverjum og allar verslanir eru opnar eins og venjulega. Þar er hins vegar grímuskylda á almannafæri, fólk sprittar á sér hendur og gætir sín í samskiptum til að verjast smiti.“

1 127171972 409760640177952 5140392455858273459 N (1)
2 127150268 705672557042935 617087369851769693 N
3 127107334 739809453284307 6883568593023922039 N
4 127173747 428793645161923 185725905106951839 N
5 127146248 379927949933971 7856638987178828696 N 1