Fara á efnissvæði
World Map Background Image
2 8444F711b6606d2164b4f2efbd1980e5c620ee15 Til baka

9.55°C

ESE

11.32 m/s

Vinnslustöðin hf. hefur keypt Huginn ehf., útgerðarfélag í Vestmannaeyjum sem gerir út fjölveiðiskipið Hugin VE-55, ásamt aflaheimildum í síld, loðnu, kolmunna og makríl.

Kaupsamningur var undirritaður í Eyjum á föstudaginn var, 29. janúar. Kaupverðið er trúnaðarmál kaupenda og seljenda.

Vinnslustöðin átti fyrir 48% hlut í Hugin en á nú félagið allt og hyggst starfrækja það áfram í óbreyttri mynd.

Seljendur Hugins ehf. eru þrír synir og dóttir hjónanna Guðmundar Inga Guðmundssonar og Kristínar Pálsdóttur. Fjölskyldan eignaðist allt félagið árið 1968 og var meirihlutaeigandi þess þar til nú. Bræðurnir eru skipstjórnarmenntaðir, tveir þeirra skipstjórar á Hugin VE en sá þriðji framkvæmdastjóri félagsins, Páll Þór Guðmundsson.

Samhliða kaupunum hefur verið ákveðið að Guðmundur Ingi Guðmundsson verði skipstjóri á Hugin á móti föður sínum, Guðmundi Hugin Guðmundssyni og föðurbróður, Gylfa Viðari Guðmundssyni. Guðmundur Ingi verður þar með þriðji ættliður skipstjórnarmanna á Hugin VE-55.

Huginn VE-55 var smíðaður árið 2001, öflugt vinnsluskip og fjölveiðiskip og veiðir uppsjávarfisk í nót eða flottroll.

Útgerðarfélagið Huginn var frumkvöðull að makrílveiðum við Ísland og fór að þreifa fyrir sér í þeim efnum á árunum 2002 til 2006 en með misjöfnum árangri. Það var svo sumarið 2007 að áhöfn Hugins VE náði alls um 3.000 tonnum, þar af um 2.500 tonnum í íslenskri lögsögu og 500 tonnum í þeirri færeysku. Þar með hófust beinar makrílveiðar í lögsögu Íslands.

Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, segir að kaupin á Hugin séu gleðiefni fyrir Vinnslustöðina en ekki síður góðar fréttir fyrir Vestmannaeyjar:

„Það var ekki sjálfgefið að kaupandi meirihluta Hugins væri félag í Eyjum en systkinin eru trú og trygg byggðarlaginu sínu og lögðu áherslu á að félagið, skipið og aflaheimildirnar yrðu hér áfram. Við erum afar ánægð með þá afstöðu þeirra.

Vinnslustöðin hefur byggt upp uppsjávarhluta starfsemi sinnar á undanförnum árum. Samrekstur félaganna mun skila aukinni hagræðingu og leiða til betri nýtingar skipa og verksmiðja samstæðunnar.

Undanfarin ár hefur Huginn ehf. verið í samstarfi við Eskju um vinnslu á makríl. Stjórnendur Vinnslustöðvarinnar sjá áhugaverða kosti í því samstarfi og vonast til að þróa það áfram.“

1 C2c9530d4868fd19f8a177c128ca0727016e6847

Að lokinni undirskrift kaupsamnings. Frá vinstri: Páll Þór Guðmundsson, Gylfi Viðar Guðmundsson, Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson og Guðmundur Huginn Guðmundsson.

Stiklað á stóru

  • 1959: Guðmundur Ingi Guðmundsson og Óskar Sigurðsson stofna útgerðarfélagið Hugin og keyptu sama ár trébát sem fékk heitið Huginn VE-65.
  • 1963: Huginn II VE-55, smíðaður í Þrándheimi í Noregi.
  • 1968: Fjölskylda Guðmundar Inga eignast allt félagið.
  • 1972: Útgerðir Hugins VE-55 og Bergs VE-44 stofna Berg-Hugin.
  • 1973: Huginn VE-55, smíðaður í Mandal í Noregi.
  • 2001: SR-mjöl gerist meðeigandi í Hugin og Síldarvinnslan kaupir síðar þann eignarhlut. Síldarvinnslan og SR-mjöl sameinast í eitt félag 1. janúar 2003 undir nafni Síldarvinnslunnar.
  • 2001: Huginn VE-55, smíðaður í Síle.
  • 2005: Guðmundur Ingi og fjölskylda kaupa hlut Síldarvinnslunnar.
  • 2005: Guðmundur Ingi og fjölskylda selja Vinnslustöðinni 48% hlut í Hugin ehf.
  • 2021: Vinnslustöðin kaupir 52% eignarhlut og á Hugin ehf.

Myndirnar sem hér fylgja fyrir neðan tók Sigurgeir Jónasson.

2 8444F711b6606d2164b4f2efbd1980e5c620ee15

Huginn VE-55 kemur til heimahafnar eftir lengingu í Póllandi.

3 2F052ccffc1739fcfc27af4b5046fb10d5a55996

Í brúnni.

4 1708Ec463e3b428f89bb4a7737702a222be80d04

Huginn VE-55 á loðnuveiðum - áður en skipið var lengt.

5 3F30460a706f491f863a41b34effb62c85a8c494

Útgerðarfélagið Huginn. Frumkvöðlar og stofnendur félagsins. Til vinstri hjónin Óskar Sigurðsson frá Bólstað og Soffía Zophoníasdóttir. Til hægri hjónin Kristín Pálsdóttir og Guðmundur Ingi Guðmundsson.

6 A913dcbac301276412027e1ca63fc6b193a55ec6

Huginn II 1972. Myndin tekin í tilefni af því að áhöfnin var aflahæst á netum á vertíðinni. Frá vinstri eru nöfn eftir því sem næst verður komist: Guðmundur Ingi Guðmundsson, skipstjóri og eigandi útgerðarinnar, Bergur bakari Sigmundsson, Tómas Guðmundsson, stýrimaður og bróðir Guðmundar Inga skipstjóra, Stein Henriksen (Brói) vélstjóri, Óli Benna vélstjóri, Indriði (sitjandi framan við), Jón Stefánsson, Sverrir Fannbergsson, Haraldur, Dódó og Rögnvaldur.

7 4E3d184079f8b432a77281a3aa94ffdd5be73f96

Huginn VE-65, fyrsti bátur útgerðarinnar, 1959.

8 D5468cac68031e69ed2d4ecd0c17a53d1680ece5

Huginn II VE-55, smíðaður í Þrándheimi 1963.

9 72540Cf092cc53db34b528fc89bb20332316a7ba

Huginn VE-55, smíðaður í Mandal í Noregi 1973.