Fara á efnissvæði
World Map Background Image
Screenshot 2023 11 28 At 12.43.43 Til baka

9.55°C

ESE

11.32 m/s

Glatt var á hjalla í veislu sem Vinnslustöðin bauð fyrrverandi starfsmönnum fyrirtækisins og mökum til á dögunum. Samkoman var í matsalnum glæsilega og þar voru á sjötta tug gesta.

Fæstir í hópnum höfðu stigið fæti inn fyrir dyr VSV eftir að nýtt starfsmannarými var tekið í gagnið og því var tekinn tími í að skoða það, nýja skrifstofu sömuleiðis og síðast en ekki síst uppsjávarhúsið.

Hefð er fyrir því að þessir virðulegu gestir séu boðnir til blóts á þorra en af því varð ekki í ár vegna COVID. Samkoman nú kom í staðinn en ekki þótti við hæfi að bera þorramat á borð á sumarbjörtum júnídegi. Þess vegna mætti sjálfur Einsi kaldi og eldaði handan mannskapnum mat sem honum er einum lagið að útbúa, dásamlega góðan saltfisk í portúgölskum anda og þorskkinn í tempura - sömuleiðis algjört lostæti.

Stjörnukokkurinn kynnti í leiðinni farsælt samstarf sitt  og Vinnslustöðvarinnar.

Binni framkvæmdastjóri sagði gestum hvað á daga Vinnslustöðvarfólks hefði drifið undanfarin misseri og hvert fyrirtækið stefndi.

Hermann Kr. Jónsson, fyrrverandi aðalbókari VSV, flutti skemmtilega tölu um lífið og tilveruna í þá gömlu góðu daga og Siggi á Hvassó frumflutti nýjan og frumsaminn, íslenskan kántrýslagara. Þeir fengu mikið lof fyrir sín framlög.

Gestirnir voru svo leystir út með húfu og buffi merktu VSV og verða því auðþekkjanlegir framvegis í mannlífsflóru Eyjanna.

Þór Vilhjálmsson, fyrrverandi starfsmannastjóri og allsherjarreddari Vinnslustöðvarinnar, heldur í tengsla- og skipulagsþræði gagnvart fyrrverandi starfsmönnum haldið og gerir það virkilega vel.

  • Lilja Björg Arngrímsdóttir tók meðfylgjandi myndir í veislunni.
1 20220608 183914
2 20220608 185125
3 20220608 185156
4 20220608 191506
5 20220608 191611
6 20220608 192014
7 20220608 192030
8 20220608 192042
9 20220608 1920560
10 20220608 192108
11 20220608 192126
12 20220608 192147
13 20220608 194754
14 20220608 194824
15 20220608 195414
16 20220608 200156
17 20220608 200439
19 20220608 202226
20 20220608 202235
21 20220608 204804