Fara á efnissvæði
World Map Background Image
Screenshot 2024 01 23 At 10.58.07 Til baka

9.55°C

ESE

11.32 m/s

Sjálfboðsliðar dreifa áburði og fræi í hlíðum Eldfells á mánudaginn kemur, 11. júní, með Guðmundu Bjarnadóttur í broddi fylkingar. Allir eru velkomnir til starfa með græna fingur og uppgræðslugleði í hjarta kl. 17:30 og hafi með sér hlífðarhanska.

Landgræðslan í Eldfelli á rætur að rekja til ákvörðunar stjórnar Vinnslustöðvarinnar um að veita 10 milljónir króna til verksins í tilefni sjötugsafmælis félagsins 2016, í samstarfi við Vestmannaeyjabæ. Dreift var sumarið 2016, tvisvar sumarið 2017 og gert er ráð fyrir dreifingu 11. júní og aftur í júlí. Guðmunda Bjarnadóttir situr í stjórn Vinnslustöðvarinnar og er verkefnisstjóri af hálfu VSV og Jóhann Jónsson af hálfu Vestmannaeyjabæjar.

Skeljungur gaf áburð til dreifingar í fyrra og gerir það aftur í ár. Fyrirtækið er þannig beinn þátttakandi í grænu og góðu verkefni sem hefur skilað miklum, sýnilegum og gleðilegum árangri. Við sáðum bæði melgresisfræjum og áburði í fyrra og sjáum mikinn árangur af því sem þá var gert þegar á heildina er litið. Þetta er mjög gefandi og skemmtilegt verk. Okkur vantar fleira fólk með græna fingur til að leggja því lið!“ segir Guðmunda.

„Gróður nær samt sér ekki á strik á nokkrum blettum og það angrar okkur vissulega. Það sem helst vantar er að beina mikilli umferð göngufólks á Eldfólks á afmarkaðar leiðir eða stíga til að hlífa betur jarðvegi og gróðri í hlíðinni. Fólk fer ákveðna leið upp á fellið en fer á mörgum stöðum niður og raskar þá viðkvæmum jarðveginum. Uppgræðslan er í sjálfu sér góð og gild en við þurfum að búa þarna til göngustíga líka.“

  • Myndirnar tók Addi í London í hlíðum Eldfells 2016 og 2017.
Image
Image (1)
Image (2)
Image (3)
Image (4)
Image (5)
Image (6)