Fara á efnissvæði
World Map Background Image
Responsibilityhero Til baka

9.55°C

ESE

11.32 m/s

Vinnslustöðin hf. auglýsir eftir nemum í skipstjórn og vélstjórn til starfa á skipum sínum. Vinnslustöðin er rótgróið útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki í Vestmannaeyjum og gerir út þrjú togskip, einn netabát og þrjú uppsjávarskip.

 

Vinnslustöðin hefur um nokkurra ára skeið boðið starfsmönnum sem eru í starfstengdu námi  styrktarsamning á meðan námi stendur. Í styrktarsamningi fyrir starfsmenn sem stunda nám í vélstjórn og skipstjórn felst:

 

  • Peningastyrkur til starfsmanns í námi á hverri önn.
  • Að starfsmanni í námi er tryggð vinna við störf á skipum VSV meðfram námi.
  • Að starfsmanni í námi er tryggð vinna að námi loknu við störf tengd námi.
  • Skilyrði um endurgreiðslu styrks ef námi er ekki lokið eða starfsmaður hættir störfum.

 

Nám í skipstjórn og vélstjórn er allt að 8 - 10 anna nám. Ef nemi hefur annað nám eða starfs­reynslu að baki þá er hugsanlegt að hægt sé að meta eitthvað af því með raunfærnimati og stytta námið. Nánari upplýsingar um raunfærnimatið veitir Viska, fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestm. - viska[at]viskave[dot]is. Allar upplýsingar um nám í skipstjórn og vélstjórn má finna á heimasíðu Tækniskólans á tskoli.is.

 

Spurt og svarað um skipstjórnar- og vélstjórnarnám:

  • Þarf ég að hafa lokið stúdentsprófi? Nei
  • Hvað er námið langt? Námið er eitt til fjögur ár eftir réttindastigum. Nemandi sem lýkur fullu vélstjórnarnámi fær réttindi sem vélfræðingur og útskrifast jafnframt sem stúdent.
  • Eru hámörk á námstíma ef ég er í vinnu með námi? Nei
  • Get ég sótt um raunfærnimat og þannig stytt nám í skipstjórn? Já, nánari upplýsingar veitir Viska, fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestm.– solrunb[at]viskave[dot]is
  • Er hægt að stunda nám með vinnu í skipstjórn? Tækniskólinn býður upp á öflugt dreifnám með vinnu í skipstjórn og að einhverju leyti er boðið upp á fjarnám í vélstjórn.
  • Er skipstjórnarnám kennt í Vestmannaeyjum að hluta eða að öllu leyti? Skipstjórnarnám er ekki boði í Vestmannaeyjum. FÍV býður upp á nám í vélstjórn á A og B stigi. Þar er hægt að stunda námið með vinnu. Sjá nánar á fiv.is.
  • Þarf ég að búa í Reykjavík stóran hluta námsins? Í skipstjórn er möguleiki á dreifnámi og þá þarftu ekki að vera búsettur á höfuðborgarsvæðinu. Hins vegar þarf að mæta í Skipstjórnarskólann í staðlotur í ákveðnum áföngum. Nám í vélstjórn á C og D stigi er einungis í boði í dagskóla á höfuðborgarsvæðinu.
  • Hvað þarf ég marga siglingatíma til að fá skipstjórnarréttindi og geta þeir siglingatímar verið vegna vinnu sem háseti? Til að fá réttindi á A stigi 18 mánuðir sem háseti (án vaktafyrirkomulags). Á B stigi sami tími. Sjá nánar reglugerð nr. 944/2020.
  • Hvað þarf ég marga siglingatíma til að ljúka vélstjórnarnámi og geta þeir siglingatímar verið vegna vinnu sem háseti? Til að fá réttindi á A stigi 4 – 9 mánuðir sem vélarvörður. Á B stigi 8 – 12 mánuðir sem vélavörður eða vélstjóri. Sjá nánar reglugerð 944/2020.
  • Er hægt að fá tíma sem ég hef verið á sjó nú þegar metna sem siglingatíma? Já en í vélstjórn eru siglingatímar sem háseti ekki metnir.
  • Hvaða stigi í skipstjórn þarf að ljúka til að vera með réttindi á skip Vinnslustöðvarinnar? Réttindi B og/eða C. B stigið veitir réttindi á 45 metra skip, C stigið veitir ótakmörkuð réttindi.
  • Hvaða stigi í vélstjórn þarf að ljúka til að vera með réttindi á skip Vinnslustöðvarinnar? Réttindi B og/eða C.

 

Nánari upplýsingar veitir Lilja Björg Arngrímsdóttir, starfsmannastjóri lilja@vsv.is / 488-8000.