Fara á efnissvæði
World Map Background Image
Gullberg A Midunum 0724 Oskar Skipstj A Sighv IMG 6317 Til baka

9.55°C

ESE

11.32 m/s

Ánægðir með breytingarnar

Gullberg VE stoppaði stutt við í Eyjum eftir viðhaldsstopp í Slippnum á Akureyri. Leiðin lá beint á makrílmiðin. Halldór Alfreðsson, er með skipið í túrnum, en hann leysir Jón Atla Gunnarsson skipstjóra af. Halldór er einungis 27 ára gamall. Þegar heimasíðan náði tali af Halldóri í hádeginu sagði hann að veiðin væri búin að vera treg.

„Við erum komnir með í skipið núna einhver 230 tonn.“ segir hann en Huginn VE er einnig á miðunum og er veitt í Gullbergið núna. „Við erum núna austast í íslenskri lögsögu.“ Hann segir þá ekki sjá ennþá hvenær þeir komi til með að vera í landi.

Er Halldór er spurður um gæðin segir hann að þetta sé stór og góður fiskur. 

Nú var skipið að koma úr klössun, ertu ekki ánægður með það? 

Við erum mjög ánægðir með breytingarnar. Vinnuplássið hefur verið bætt og búið að loka honum bakborðsmegin.Þá var settur í skipið andveltitankur, sem á klárlega eftir að reynast vel á komandi haustmánuðum, svarar Halldór og bætir við að fínasta veður hafi verið þegar þeir komu á miðin. Nú er hins vegar búinn að vera kaldi úr suðvestri sem hjálpar ekki til við veiðarnar.

Og skipið komið í Vinnslustöðvar-litina? Já, ekki má gleyma því. Það er komið í Vinnslustöðvar-búninginn og sæmir sér vel.

Myndin hér að ofan er tekin á miðunum fyrir skömmu.